![](https://static.wixstatic.com/media/081395_385cfc9168764fbebda6a32b23953150~mv2_d_3872_2592_s_4_2.jpg/v1/fill/w_146,h_98,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,blur_2,enc_auto/081395_385cfc9168764fbebda6a32b23953150~mv2_d_3872_2592_s_4_2.jpg)

![](https://static.wixstatic.com/media/081395_8231d6f263194688aa09f38414f2e8b7~mv2_d_3888_2592_s_4_2.jpg/v1/fill/w_146,h_98,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,blur_2,enc_auto/081395_8231d6f263194688aa09f38414f2e8b7~mv2_d_3888_2592_s_4_2.jpg)
![Aðkoma Vinaskógar](https://static.wixstatic.com/media/081395_83d201e199f94b548732fc1b667e5883~mv2.jpg/v1/fill/w_147,h_110,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,blur_2,enc_auto/081395_83d201e199f94b548732fc1b667e5883~mv2.jpg)
Ljósmyndari: Brynjólfur Jónsson
![Frú Vigdís Finnbogadóttir](https://static.wixstatic.com/media/081395_f549a03058a34257a388c92f722d8cf2~mv2.jpg/v1/fill/w_147,h_203,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,blur_2,enc_auto/081395_f549a03058a34257a388c92f722d8cf2~mv2.jpg)
Ljósmyndari: Brynjólfur Jónsson
![Vinaskógur - yfirsýn](https://static.wixstatic.com/media/081395_d15927a1f8964622bff38ba67f953c43~mv2_d_2048_1365_s_2.jpg/v1/fill/w_147,h_98,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,blur_2,enc_auto/081395_d15927a1f8964622bff38ba67f953c43~mv2_d_2048_1365_s_2.jpg)
Ljósmyndari: Ragnhildur Freysteinsdóttir
![Aðkoma Vinaskógar](https://static.wixstatic.com/media/081395_83d201e199f94b548732fc1b667e5883~mv2.jpg/v1/fill/w_147,h_110,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,blur_2,enc_auto/081395_83d201e199f94b548732fc1b667e5883~mv2.jpg)
Ljósmyndari: Brynjólfur Jónsson
Fróðleikur
Almennt um skóginn
Til Vinaskógur var stofnað í tilefni Landgræðsluskógaátaksins en þáverandi forseti frú Vigdís Finnbogadóttir var verndari þess. Að hennar ósk var fundinn staður þar sem forsetinn gæti komið með erlenda þjóðhöfðingja og gróðursett tré í nafni vináttu og friðar.
Síðan hefur Forseti Íslands verið verndari Vinaskógar.
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson var hvatamaður að því að aðkoma og aðstaða í Vinaskógi var endurbætt á árunum 2002-2004.
Fyrstur erlendra þjóðhöfðingja sem heimsótti Vinaskóg og gróðursetti þar tré var Elísabet önnur Englandsdrottning, þann 26. júní 1990. Síðan hafa margir þjóðhöfðingjar gróðursett þar tré með forseta Íslands en á þann hátt hefur Vinaskógur öðlast mikla sérstöðu.
Vinaskógur er á vesturmörkum jarðarinnar Kárastaða í Þingvallasveit, ekki lang frá hinum helga stað Þingvöllum sem tekin var á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna árið 2004.
Skógræktarfélag Íslands hefur umsjón með gróðursetningu og umhirðu skógarins.
Aðstaða og afþreying
Vinaskógur er í raun smár, ungur skógarlundur og um hann liggur greiðfær stígur. Áhugavert er að skoða hvaða þjóðahöfðingjar hafa heimsótt skóginn, en listi yfir þá er að finna á bautasteinum á staðnum.
Trjárækt í skóginum
Einvörðu hefur verið gróðursett ilmbirki og reyniviður á svæðinu. Gulvíðir og loðvíðir hafa svo breiðst út af sjálfsdáðum.